Ásvegur 7 - 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr á Hauganesi - Stærð 262,8 m².
Eignin er skemmtilega staðsett innst í botnlanga.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Aðalhæð: Forstofa, eldhús, stofa, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla
Kjallari: Geymsla og tvö svefnherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi, fatahengi.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu með ljósri borðplötu, spanhelluborð og ofn í vinnuhæð. Stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Dúkur á gólfi.
Stofa, gengið er niður í stofu um eitt þrep frá holi, þar er stór arinn sem setur mikinn svip á stofuna, afar víðsýnt er úr stofu. Parket er á gólfi.
Hol er einkar rúmgott en þar hefur verið útbúið sjónvarprými úr því sem áður var svefnherbergi, auðvelt væri að snúa því til fyrra horfs. Úr holi er útgengt á timburverönd.
Svefnherbergi á aðalhæð eru þrjú talsins, er eitt þeirra með fataskáp, einnig eru tvö mjög rúmgóð svefnherbergi í kjallara.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, sturtu, baðkari, wc og opnanlegum glugga.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi, þar er hillur og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Sér inngangur er í þvottahús. Úr þvottahúsi er svo gengið niður teppalagðan stiga niður í kjallara.
Geymsla er í kjallara.
Bílskúr, 36 m² er með steyptu gólfi, og rafdrifinni bílskúrshurð. Bæði er heitt og kalt vatn í skúr og hitablásari nýlegur fylgir með.
Annað:- Geymsluloft er yfir hluta eignarinnar.
- Góður einangraður geymsluskúr á lóð.
- Ljósleiðari