Margrétarhagi 2 íbúð 203 - Nýleg 4ra herbergja efri sérhæð (norður endi) með sér inngangi og bílskúr í Hagahverfi – Stærð 148,6 m² þar af telur bílskúr 38,2 m²Um 70 m² steypt verönd fylgir íbúðinni.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr ásamt sameiginlegri geymslu.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og vönduðum fataskápur með fataslá og hillum.
Eldhús, vönduð innrétting og eldunareyjar, plastlagt með struktur-eik og hvítri bekkplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgir með við sölu eignar.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Þar er ljóst harð harðparket á gólfi, innfelld lýsing í lofti og gluggar til þriggja átta. Hurð er úr stofunni út á veröndina.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harð parketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningu 8,7 - 13,2 m²
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, gráar flísar á gólfum og hvítar á veggjum. Vönduð innrétting með speglaskáp fyrir ofan og skápur. Upphengt wc, sturta og opnanlegur gluggi.
Þvottahús er með gráum flísum á gólfi og veglegri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er skráður 38,2 m² að stærð. Þar eru flísar á gólfi og ljós innrétting. Sér gönguhurð.
Sameiginleg geymsla er undir stiga.
Annað- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Innfelld led lýsing í alrými og gangi.
- Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
- Rúmgóð steypt verönd er ofan á bílskúr. Hægt er að ganga út á veröndina bæði úr stofu og forstofu.
- Hitalögn er í steyptri stétt við aðalinngang, á verönd og tröppum.
- Eignin er í einkasölu