Hagaskógur 1 , 604 Akureyri
115.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
249 m2
115.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
37.350.000

Hagaskógur 1 – Glæsilegt 5 herbergja einbýlishús með bílskúr í byggingu á fallegri 3.737 m² lóð úr landi Glæsibæjar - Heildarstærð eignar 249,6 m²
Stórir gólfsíðir gluggar eru í húsinu og gott útsýni til allra átta - Keyrsla frá Akureyri tekur um 6-7 mín og er tæpir 7 km

Gengið er inn um bjarta og rúmgóða forstofu að vestan, þaðan er annarsvegar hægt að ganga til suðurs inn í stórt opið rými með borðstofu og stofu, þar er gert ráð fyrir arni. Inn af borðstofu er gengið inn í eldhús og hjónaherbergi sem inniheldur fata- og baðherbergi. Stór rennihurð er út á verönd úr eldhúsi og einnig er útgönguhurð úr stofu.
Til norðurs úr forstofu er sjónvarpshol. Frá því eru þrenn barnaherbergi, baðherbergi. Einnig er útgönguhurð og stór gólfsíður gluggi til austurs út af sjónvarpsholi.
Tenging milli íbúðar og bílskúrs er í gegnum þvottahús, en inn af bílskúr er einnig að finna geymslu.
- Lofthæð er um 2,75 m, en um 3,3 m í stofu.
Húsið er staðsteypt með Nudura einangrunarkubbum, burðarveggir innanhúss eru steyptir sem og þak. Þak er steypt með halla og á því er einangrun og dúkur af viðurkenndri gerð. Gólfplata er einangruð með 4” plasteinangrun. Léttir veggir eru úr timbri, klæddir með spónaplötum og gipsi og einangraðir með 95mm steinull. Gert er ráð fyrir hurðum í aukinni hæði, 225 cm. Gólf slípað og flotað. Veggir eru því tilbúnir fyrir spörtslun og málningu og gólf tilbúið fyrir gólfefni.
Allir gluggar í húsinu eru úr áli að utan sem innan, með öryggisgleri og sólvarnargleri.
Gólfhiti er í húsinu öllu og tengdur í gólfhitakistu í bílskúr. Lagnir eru fyrir heitan pott og sturtu á verönd.
Rafmagnsinntak er greitt og allar rafmagnsdósir eru komnar í veggi. Ekki er búið að draga í neinar dósir.

Hjónaherbergi
- Stór gólfsíður gluggi með útgönguhurð og fallegu útsýni.
- Rúmgott fatarými
- Innangengt á baðherbergi
- Frá baðherbergi er útgönguhurð.
Barnaherbergi
- Barnaherbergi eru þrjú talsins, öll rúmgóð.
- Góðir gluggar með opnanlegum fögum.
Bílskúr (38,4 m²)
- Tvær útgönguhurðar – Ein til norðurs og önnur til suðurs.
- Stór gluggi með glæsilegu útsýni.
- Aðkoma að bílskúr er að vestan.
- Bílskúrshurð er 3,5 m breið og fylgir með við sölu óuppsett ásamt opnara.
- Góð geymsla inn af bílskúr með glugga.
Baðherbergi Á báðum baðherbergjum er gert ráð fyrir sturtum, vegghengd klósett er tengt.
- Gluggar með opnanlegu fagi.
- Gert er ráð fyrir handklæðaofnum.
  • Lóðarleigusamningur er til 90 ára frá febrúar 2022 og framlengist frá þeim tíma um 20 ár í senn ef báðir aðilar fullnægja skyldum sínum samkvæmt samningi.
  • Heimilt byggingarmagn á lóðinni er 500 fm og allt að þrjár einingar. Getur t.d. verið einbýli, vinnuskúr og gestahús.
  • Húsasmíðameistari er Jóhannes Hólmar Jóhannesson, byggingarstjóri Brynjólfur Árnason og arkitekt Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
  • Húsið afhendist við kaupsamning á því byggingarstigi sem það er í dag nema samið sé um annað.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.