Hrísalundur 6d - Skemmtilegt 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýli á Brekkunni - stærð 66,8 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Á jarðhæðinni er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi.
Eldhús, falleg hvít innrétting með viðarbekkplötu. Ísskápur með frysti er innfelldur í innréttingu og fylgir með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi, stórum vestur glugga og hurð út á steypta vestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö, annað með dúk á gólfi og hitt með harð parketi. Hvítir fataskápar eru í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, handklæðaofni og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél.
Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 4,7 m² að stærð.
Annað- Eldhús, baðherbergi og fataskápar hefur verið endurnýjað.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Stutt í verslun og skóla.
- Eignin er í leigu - 6 mánaða uppsagnarfrestur.- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.