Ránargata 30 - Snyrtileg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í vel viðhöldnu þríbýlishúsi á Eyrinni - stærð samtals 110,5 m²
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Tveir sameignlegir inngangar, eldhús, stofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymsla í kjallara.
Þvottahús er í sameign með miðhæð. Tveir sameignlegir inngangar, annar er á aðalhlið hússins og er hann í sameign með risíbúð, hinn er frá bílastæði í gegnum þvottahús og í sameign með íbúð á miðhæð.
Eldhús: er bjart með fallegri hvítri innréttingu og flísum milli skápa. Ljósar flísar á gólfi. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu og bakaraofn er í vinnuhæð. Innbyggður nýlegur ísskápur sem fylgir með við sölu.
Stofa: rúmgóð stofa með gluggum til tveggja átta. Plastparket er á gólfi og stórir gluggar.
Hol: er rúmgott með parketi á gólfi. Fatahengi við anddyri fylgir með.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðum skápum. Annað herbergi var áður borðstofa og það þriðja nýtist í dag sem skrifstofa.
Baðherbergi: er með ljósum flísum á gólfi og veggjum. Nýleg hvít innrétting, nýlegt klósett, baðkar.
Þvottahús: er sameiginlegt með íbúð á miðhæðinni. Þar er bakdyrainngangur og þaðan er gengið niður í kjallara
Geymslur: gott geymslurými er í kjallara hússins. Kjallarinn er í sameign með miðhæðinni en sér geymsla fylgir íbúðinni.
Annað:- Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2007. Þá var skipt um gólfefni, eldhúsinnréttingu, flestar innihurðar o.fl.
- Þak var málað og yfirfarið 2023
- Húsið var málað að utan fyrir u.þ.b. 4 árum
- Nýlegt gler í gluggunum þremur á austurhlið hússins
- Sér hiti og rafmagn
- Hellulagt bílastæði á norðurhluta lóðarinnar.
- Sameiginlegur geymsluskúr er á lóð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.