Langahlíð 2 sér inngangur , 603 Akureyri
41.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
77 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1954
Brunabótamat
32.200.000
Fasteignamat
38.850.000

Langahlíð 2 - Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð snyrtilegu tvíbýlishúsi í Glerárhverfi - stærð 77,7 m²

- Eignin er laus við kaupsamning -


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. 

Forstofa er með flísum á gólfi. Útidyrahurð hefur verið endurnýjuð. Úr forstofu er gengið inn á hol með flísum á gólfi og gólfhita. 
Eldhús, snyrtileg hvít sprautulökkuð innrétting með grárri bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Flísar á gólfi og borðkrókur með glugga til suðurs. 
Stofa er með harð parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð og með harð parketi á gólfi. Í hjónaherberginu er fjórfaldur fataskápur. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri sprautulakkaðri innréttingu, wc, sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla er inn af öðru svefnherberginu en þar er ekki full lofthæð. 

Annað
- Fyrir framan er rúmgott hellulagt bílaplan sem er séreign neðri hæðar. 
- Hellulög stétt er frá bílaplani og að forstofuhurð. 
- Lóð er skipt upp í sérafnotahluta fyrir hvora íbúð. 
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Stór hluti af innbúi fylgir með við sölu eignar.
- Hitaveitulagnir eru ónýtar og raki mælist í gólfplötu á baðherbergi. Engar endurbætur verða unnar á eigninni fyrir afhendingu og selst hún í núverandi ástandi. Áhugasömum aðilum bent á að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Eignin er í einkasölu
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.