Bakkatún 18b, Svalbarðseyri - Nýleg (2022) 4-5 herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr - stærð 145 m²
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu sem getur nýst sem fjórða svefnherbergið og bílskúr.
*** Aukin lofthæð (265 cm) og upptekin loft í alrými
*** Gólfsíðir gluggar í stofunni með frábæru útsýni
*** Loftskiptikerfi og varmaskiptir
*** Allar innréttingar og fataskápar frá TAK innréttingum
*** Nýlegur heitur pottur og steypt verönd
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: er rúmgóð með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp frá TAK innréttingum.
Eldhús og stofa: eru í opnu rými. Þar er harðparket á gólfi. Loftin eru tekin upp og innfelld lýsing. Gólfsíðir gluggar úr stofunni gefa gott útsýni yfir sjóinn og yfir í Hlíðarfjall. Þaðan er hurð út á steypta verönd með heitum potti og steyptum skjólveggjum. Eldhúsinnrétting frá TAK, ljós og eikarlituð, með dökkri bekkplötu og ofni í vinnuhæð. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Hjónaherbergi: Er skv. teikningum 12,7 m² að stærð og með góðum fataskápum. Harðparket á gólfi. Hurð er út úr hjónaherberginu á steypta verönd á baklóð.
Tvö barnaherbergi: eru bæði með harðparket á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,3 m²
Geymsla: nýtist í dag sem fjórða herbergið og er skv. teikningum 7,3 m² að stærð. Þar er harðparket á gólfi og góður gluggi.
Baðherbergi: er flísalagt, bæði gólf og veggir. Walk-in sturta, upphengt wc og hvít innrétting og speglaskápur. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahús: er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur og opnanlegur gluggi er í þvottahúsi. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn.
Bílskúr: flísar á gólfi. Rafdrifin innkeyrsluhurð og önnur inngönguhurð á hlið bílskúrsins.
Annað: - Ljósleiðari
- Innfelld lýsing og gólfhiti í öllum rýmum íbúðar
- Lagnir fyrir snjóbræðslu eru í steyptum stéttum fyrir framan hús og verönd, ótengdar.
- Heitur pottur fylgir með.
- Niðurgrafið trampólín fyrir aftan hús fylgir með.
- Magnað útsýni
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.