Bjarkarbraut 23 íbúð 202- Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli á Dalvík - stærð 70,5 m²** Eignin er seld með fyrirvara **Eignin skiptist í forstofu, eldhús, búr/geymslu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa er með flísum á gólfi, skáp og opnu hengi.
Eldhús, flísar á gólfi og tvílit sprautulökkuð og spónlögð innrétting með flísum á milli skápa.
Búr/geymsla er inn af eldhúsinu. Þar er lakkað gólfi, hvít innrétting með skolvask, hillur og opnanlegur gluggi. Hleri er í loftinu upp á loft yfir íbúðinni.
Stofa er með dökku parketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á steyptar vestur svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku parketi á gólfi og fatakápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 11,7 og 8,6 m².
Baðherberbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri sprautulakkaðri innréttingu, wc ,baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Aðstaða er fyrir þvottavél inn á baðherberginu.
Annað- Sameiginleg kyndikompa/geymsla fyrir allar íbúðar í húsinu er á milli íbúða á neðri hæðinni. Þar er bæði rafmagnstafla og inntök fyrir húsið.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.