Gilsbakkavegur 5 - 3ja herbergja risíbúð í þríbýli rétt fyrir ofan miðbæ Akureyrar - stærð 45,0 m²Íbúðin skiptist í gang, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Sameiginleg forstofa og sameiginlegt þvottahús.
Gengið er inn í íbúð að austanverðu um sameiginlegan inngang. Timbur stigi er upp íbúðina.
Gengið er upp timbur stiga upp í íbúðina og komið inn á gang með dökku plast parketi á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu rými með dökku plast parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Í eldhúsi er hvít innrétting með grárri bekkplötu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku plast parketi á gólfi. Í hjónaherberginu er laus fataskápur sem fylgir með við sölu eignar.
Baðherbergi er með dökku plast parketi á gólfi, hvítri innréttingu og speglaskáp, wc, baðkari með sturtutækjum og tengi fyrir þvottavél.
Geymslurými er á nokkrum stöðum í íbúðinni undir súð og svo í kjallara undir tröppum að austan.
Í kjallaranum er sameiginlegt þvottahús. Annað:- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Þak verður endurnýjað vor/sumar 2024 og útidyrahurð á austurhliðinni. Seljandi mun greiða kostnað vegna þessara framkvæmda.
- Rafmagnskynding er í íbúðinni.
- Eignarhlutur íbúðar í húsinu er um 15,3 %
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun ágúst 2024.
- Eignin er í einkasölu