Ægisgata - sjávarútsýni , 621 Dalvík
79.990.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
157 m2
79.990.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
87.800.000
Fasteignamat
45.500.000

Stílhreint nýtt 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr á einstakri útsýnislóð við sjóinn á Árskógssandi í Eyjafirði - Stærð eignar 157,7 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í einu alrými, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslulofti auk geymslulofts yfir íbúðarhluta.


Forstofan er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Eldhús og stofa eru í einu opnu og björtu alrými hvar loftin eru tekin upp. Ljóst harðparket er á gólfum og úr stofu er útgangur í garð til suð-vesturs.  Í eldhúsi er vegleg hvít innrétting með viðarbekkjum, rúmgóðri eldunareyju. Í eldhúsi fylgja með við sölu innfelldur ísskápur, uppþvottavél og örbylgjuofn sem innfelldur er í innréttingu fyrir ofan bakaraofn. Úr eldhúsi er fallegt útsýni út á fjörðinn. 
Svefnherbergi eru þrjú innan íbúðar auk þess sem eitt herbergi hefur verið útbúið innaf bílskúr. Ljóst harðparket er á gólfum og hvítir skápar í öllum herbergjum.
Baðherbergin eru tvö, bæði flísalögð í hólf og gólf og með rúmgóðum sturtum með gleri, dökkum innréttingum, innbyggðum blöndunartækjum og opnanlegum gluggum.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi, snyrtilegri hvítri innréttingu og útgangi til suðsvesturs.
Bílskúrinn er skráður 52,6 m² en í því rými er baðherbergi, þvottahús og eitt herbergi þannig að bílageymslan sjálf er um 28 m² og úr henni er farið upp á geymsluloft.  Flísar eru á gólfum og auk innkeyrsluhurðar er gönguhurð út á bílaplanið.
Lóðin er gróin og framan við húsið er rúmgott bílaplan með perlumöl. Gert er ráð fyrir lögnum út úr húsinu fyrir bæði hita og plani sem og tengingar fyrir heitan pott.

Annað
- Gólfhiti er í öllu húsinu og varmaskiptir.
- Allar innréttingar eru frá Kvikk
- Innfelld lýsing er alrými, gangi, baðherbergjum og hjónaherbergi.
- Eignin er laus til afhendingar fljótlega.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.