Brimnesvegur 24 - Snyrtilegt 3ja herbergja einbýlishús á hornlóð á Ólafsfirði - stærð 81,7 m²Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á
hol með dökku plastparketi á gólfi og innbyggðum skáp.
Eldhús, dökk viðar innrétting með flísum á milli skápa og dökkt plastparket á gólfi. Ágætur borðkrókur með glugga með útsýni út á fjörðinn.
Stofa er með dökku plastparketi á gólf og gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku plastparketi á gólfi og í hjónaherberginu er stór spónlagður fataskápur.
Þvottahús er með lökkuðu gólfi, ljósri innréttingu og hurð út á baklóð. Lúga er í loftinu upp á loft.
Geymsla er innaf þvottahúsinu með flísum á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Á baklóðinni er góður
geymsluskúr sem búið er að klæða að innan og setja harðparket á gólfið.
Annað- Fyrir framan er lítil timburverönd og timbur stétt.
- Búið er að endurnýja mikið af gleri.
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar
- Húsið er nýlega málað að utan.
- Skemmtilegt lítið einbýlishús sem hefur verið vel viðhaldið.
- Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega