Til sölu fyrirtækið Betri vörur ehf og fasteignin Múlavegur 7 á Ólafsfirði.Betri vörur ehf. er fiskverkunarfyrirtæki sem vinnur og selur unnin silung og lax frá landeldisframleiðslu Samherja.
Stöðugildi í fyrirtækinu eru 2-3
Öll framleiðslan í dag fer fram á efri hæð hússins, því er góður möguleiki að bæta við framleiðsluna hvort sem um er að ræða aukningu á þeim vörum sem eru í framleiðslu eða byrja á nýju. Hluta úr ári hefur verið grásleppuvinnsla á neðri hæðinni.
Öll leyfi til vinnslu og sölu innanlands á fiskafurðum fylgja með.
Fasteignin Múlavegur 7 er steypt tveggja hæða fiskverkunarhús - 704,8 m² að stærð á horni Múlavegs og Ránargötu.
Neðri hæðin skiptist í tvo vinnslusali fyrir bolfiskvinnslu, umbúðageymslu, lyftarageymslu og starfsmannaaðstöðu.
Efri hæðin skiptist í kaffistofu, skrifstofu, snyrtingu, vinnslusali, umbúðageymslu, kæli og reykofn.
Hér er um að ræða kjörið tækifæri að fyrir duglega aðila sem vilja fara úti eigin rekstur með traustan viðskiptavinahóp og góða möguleika á auknum viðskiptum.
Frekar upplýsingar veitir Björn, 466 1600 eða [email protected]