Skógarsel í Eyjafjarðarsveit
Einbýli á eignarlóð úr landi Holtsels - um 22 km sunnan við Akureyri.10 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum sem samtals telur 245 m² á 1.095 m² eignarlóð.
Húsið var upphaflega byggt árið 1938, steinsteypt hús og þá skráð 121,6 m² að stærð. Árið 1950 var byggt við húsið til norðurs, múrhlaðin viðbygging á einni hæð skráð 59,9 m². Árið 1993 var svo byggt við upphaflega íbúðarhúsið, steinsteypt tvílyft viðbygging til austurs skráð 63,5 m². Lóðin er eignarlóð, 1.095,0 m² að stærð.
Forstofur eru þrjár og á þeim öllum eru flísar
Á efri hæð hússins er eldhús með parketi á gólfi og ljósri innréttingu, borðstofa og stofa með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og með stórum gluggum til austurs og suðurs. Eitt svefnherbergi með parketi og salerni með flísum sem er innaf forstofu.
Á neðri hæð er hol/gangur með flísum, tvö baðherbergi með flísum og sturtu, þvottahús og rúmgóð geymsla innaf, fjögur svefnherbergi og af þeim eru þrjú með parketi og eitt með dúk.
Í viðbyggingu til norðurs úr húsinu er þrjú svefnherbergi með plastparketi og eitt herbergjanna er mjög rúmgott.
Húsið er mjög rúmgott og með ágætum útleigumögleikum þar sem á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi, en einnig væri hægt að útbúa útleigueiningu í viðbyggingu.
Lóðin er gróin og með miklum trjágróðri, skráð 1.095 m² að stærð.
Annað- Eignin er laus til afhendingar strax
- Hitaveita er í húsinu.
- Skemmtilegt útsýni.