Bjarkarlundur 19 / Uppsalir Þingeyjarsveit
Vel staðsett 4ra herbergja sumarhús á 2000 m² birkigróinni leigulóð í Aðaldalshrauni stutt frá Húsavíkurflugvelli og Laxá í Aðaldal - stærð 53,7 m²Húsið er timburhús og skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Lítið geymsluloft er yfir hluta hússins.
Forstofa og gangur eru með ljósu plast parketi á gólfi og opnu hengi.
Eldhús og stofa eru í opnu rými þar sem loft eru tekin upp og ljóst plast parket er á gólfi. Í eldhúsi er viðarlituð innrétting og milli eldhúss og stofu er hurð út til suðurs á timbur verönd.
Svefnherbergin eru þrjú, eitt barnaherbergi með koju og tvö önnur með föstum rúmbotnum, þreföldum fataskáp og skrifborði. Ljóst plast parket er á gólfum í öllu herbergjunum.
Baðherbergi er með ljósu plast parketi á gólfi, hvítri innréttingu, wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Geymsla er með ljósu plast parketi á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Geymsluloft er yfir tveimur svefnherbergjum og er stigi upp á það af ganginum.
Annað- Um 80 - 90 m² timbur verönd er með suður og vesturhlið hússins og á henni er nýlegur heitur pottur/rafmagns.
- Lóðin er 2000 m² leigulóð, gróðursæl, birkikjarr og skógur.
- Rafmagnskynding
- Allt innbú að undanskildum persónulegum munum fylgir með við sölu eignar.
- Aksturstími frá Húsavík er um 10-15 mínútur og frá Akureyri um 35 - 40 mín.