Jörðin Barká í HörgárdalJörðin er staðsett um 25 km frá Akureyri og stendur norðan undir mynni Hafrárdals í Hörgárdal og er fremsti bærinn þarna megin. Landamerkin eru við árnar, þ.e. við Hörgá að austan, Hafraá að sunnan og Oddstaðaá að norðan. Að vestanverðu nær jörðin upp í fjall og inn Hafrárdalinn að norðanverðu og er heildarstærð jarðarinnar talin um 900 - 1.000 ha. Túnin eru rúmir 32 ha og ná frá Hörgánni og lítið eitt upp fyrir bæjarstæðið. Enginn búskapur er lengur að Barká en tún hafa verið nytjuð.
Íbúðarhúsið stendur fyrir ofan Hörgárdalsveg og var byggt árið 1979 og er forsteypt einingahús með viðbyggingu úr stálgrind - samtals telur húsið 184,1 m². Íbúðarhúsið skiptist í eldhús með með harðparketi á gólfi og nýlegri innréttingu, 4 svefnherbergi, baðherbergi og stofu. Vinna stendur yfir við að leggja gólfhita í allt íbúðarhúsið og leggja harðparket. Baðherbergið er jafnframt í uppgerð. Í stálgrindarhlutanum er ágætur bílskúr, forstofa í millibyggingu, geymsla og þvottahús. Ný varmadæla er kominn á staðinn, ótengd.
Útihúsin standa neðan við veginn og eru sambyggð, nokkuð stór stálgrindarhlaða með stórri innkeyrsluhurð til norðurs sem byggð var árið 1985 og skráð er 225 m². Út úr henni ganga annars vegar fjárhús til suðurs sem byggt var árið 1969 skráð 116,8 m² og fjós til austurs sem byggt var árið 1963 og skráð er 284,8 m² að stærð. Húsin hafa verið klædd að utan með bárujárni og líta vel út. Fjósið sjálft er ekki lengur nýtt sem fjós, heldur hafa þar verið útbúnar 5 stíur fyrir hesta og stíur fyrir um 20 nautgripi grindum. Undir fjósinu er haughús en fjárhúsið er taðhús og þar er pláss fyrir um 100 kindur. Þak á fjárhúsinu var endurnýjað árið 1987
Mjólkurbú var rekið að Barká fram til ársins 2007 auk sauðfjárbúskapar. Fjósið er hægt að nota til nautgriparæktar eða til annarskonar skepnuhalds en jörðin hentar annars vel fyrir minni búskap, útihúsin ágæt og íbúðarhúsið sömuleiðis þó tími sé kominn á eitthvað viðhald.