Jódísarstaðir lóð nr. 7 - Vandað 44,0 m² sumarhús á 10.000 m² leigulóð skemmtilegum stað í Þingeyjarsveit. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Geymsluskúr er við endann á veröndinni.
Forstofa er með spónaparketi á gólfi, tvöföldum skáp og hengi
Eldhús, ljós viðar innrétting með flísum fyrir ofan neðri skápa. Sambyggð elda- og uppþvottavél.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með þar sem loft er tekið upp og gluggar til þriggja átta. Spónaparket á gólfi og hurð til suðurs út á timbur verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með spónaparketi á gólfi. Fataskápur er í öðri herberginu.
Baðherbergi er með dúk á gólfi og hluta veggja, ljósri viðar innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga.
Geymsluskúr er við endan á veröndinni, þar er vinnuborð og efriskápar.
Annað- Timbur verönd er með öllum hliðum hússins, um 90 m².
- Rafmagnskynding.
- Húsið var byggt árið 1998 og flutta á staðinn, steyptar undirstöður.
- Búið er að planta mikið á lóðinni.
- Húsið selst með innbúi að undanskildum persónulegum munum.
- Eignin er í einkasölu