Kjarnagata 51 íbúð 303 , 600 Akureyri
57.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
80 m2
57.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
37.800.000
Fasteignamat
47.300.000

Kjarnagata 51 íbúð 303 - Nýleg 3ja herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 80,2 m²
Eigninni fylgir sér stæði í bílageymslu og sér geymsla í kjallara.         

Birt flatarmál séreignar: 80,2m²  
Þar af sérgeymsla í kjallara: 4,5 m²   


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.

Forstofa og gangur eru með vínyl parketi á gólfi og opnu hengi. 
Eldhús, vínyl parket á gólfi og vönduð tvílit innrétting með flísaþiljum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Borðkrókur með útsýnisglugga til vesturs. Frontur á uppþvottavél fylgir með við sölu.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með vínyl parketi á gólfi og rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar svalir með svalalokunarkerfi. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð, með vínyl parketi á gólfum og góðum fataskápum. Sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi og tvöfaldur í barnaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja og vandaðri tvílitri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Upphengt wc og sturta með glerhurðum.

Í kjallaranum er sér geymsla skráð 4,5 m² að stærð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum með góðu aðgengi. 

Annað
- Vínyl parket er á öllum gólfum íbúðar nema baðherbergi.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum í felstum rýmum.
- Loftræstikerfi - Sérstakur vélrænn loftskiptibúnaður með tilheyrandi loftræsilögnum er í íbúðinni þar sem ferskt loft er hitað upp með útkastslofti. 
- Mynd-dyrasími
- Gólfhiti er í íbúðinni. 
- Hunda- og kattahald er leyfilegt í húsinu
- Eignin er í einkasölu

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.