Rúmgóð og vel skipulögð 6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum (hæð og ris) á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 153,6 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti;
Neðri hæð, 93,1 m²: Forstofa, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa.
Efri hæð, 54,5 m²: Sjónvarpshol, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Forstofa er með flísum á gólfi og rétt innan við forstofu er rúmgóður fataskápur undir tröppum á milli hæða.
Í eldhúsi er snyrtileg
ljós innrétting með flísum á milli skápa og parketi á gólfi. Eyja með skúffuplássi sem jafnframt nýtist sem eldhúsborð. Úr eldhúsi er gengið út á steypta verönd með heitum potti.
Stofa er með parketi á gólfi og stórum suður glugga.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö á neðri hæð og tvö á efri hæð og öll eru þau með parketi á gólfi og fataskápar eru í þremur þeirra.
Baðherbergin eru tvö. Á neðri hæð eru flísar á gólfi og veggjum, wc, handlaug, nýlegu skápur undir vaska og nýlegur speglaskápur, og baðkar með sturtutækjum. Á efri hæð eru flísar á gólfi og hluta veggja, handlaug, wc og sturta með hengi.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og opnanlegum þakgluggum. Búið er að stúka af hluta af sjónvarpsholi og útbúa vinnuaðstöðu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og hillum.
Geymsla er á efri hæð og er að hluta til undir súð. Þar er lakkað gólf.
Geymsluskúr fyrir framan íbúðina er skráður 6 m² að stærð og er inn í heildarfermetrafjölda eignar.
Geymsluskúr á baklóð er um 12 m² að stærð, með steyptu gólfi og hann er ekki inní skráðum fermetrafjölda.
Báðir skúrarnir eru einangraðir og með rafmagni.
Íbúðin er í barnvænu umhverfi og framan við íbúðina er sameiginlegt opið leiksvæði með nýlegum leiktækjum.
Stutt er í skóla og leikskóla, líkamræktarstöðin Bjarg er hinum megin við götuna og Norðurtorg í göngufæri.
Annað- Verönd er steypt og með heitum potti/skel og timbur skjólveggjum.
- Húsið var málað að utan sumarið 2021
- Þak var málað og yfirfarið sumarið 2021
- Nýtt harðparket var sett á íbúðina 2020
- Allar innihurðar eru hvítlakkaðar.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.