Víðilundur 24 íbúð 205 - Snyrtileg 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjöleignarhúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri á mjög góðum stað á efri brekkunni - Stærð 67,4 m².Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús og stofa í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og tvær sérgeymslur.
Forstofa er með góðum fataskáp og opnu fatahengi. Harðparket er á gólfi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, með flísum á milli skápa, þar er helluborð og stæði fyrir uppþvottavél. Ísskapur og uppþvottavél fylgja með við sölu. Harðparket á gólfi.
Stofa er með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs, þaðan er út gengt í sólskála sem einnig er með harðparketi og útgangi á svalir.
Svefnherbergi er nokkuð rúmgott með góðum fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri rúmgóðri innréttingu, walk-in sturtu, wc og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél. Flísar á gólfi sem og veggjum að mestu.
Tvær
geymslur fylgja íbúðinni, önnur er á hæðinni en hin á jarðhæð. Báðar eru nokkuð rúmgóðar.
Annað:
- Nýlegt harðparket er á gólfi.
- Nýleg borðplata í eldhúsi.
- Nýleg blöndunartæki í sturtu.
- Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.