Halldóruhagi 1 íbúð 106 - Nýleg og mjög vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli með lyftu og sér stæði í bílageymslu - stærð 77,2 m²
Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. maí á milli kl. 12:00 - 13:00 - vinsamlegast pantið skoðun í síma 466 1600 eða á [email protected] Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Í kjallaranum er sér geymsla og sér stæði í bílageymslu.
Forstofa er með harð parketi á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús, vönduð grá L-laga innrétting með flísum á milli skápa. Bosch helluborð, ofn og vifta. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með harð parketi á gólfi. Úr stofu er rennihurð út á steypta suður verönd með steyptum skjólveggjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harð parketi á gólfi og gráum fataskápum.
Baðherbergi eru með flísum á gólfi og hluta veggja, grárri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Í kjallaranum er
sér geymsla skráð 5,4 m² að stærð
Sér stæði í bílageymslu. Búið er að leggja að stæðinu svo hægt sé að setja upp rafhleðslustöð.
Annað- Hvítar innihurðar
- Allar innréttingar eru frá Brúnás
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum nema á baðherbergi.
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Hluti af innbúi getur fylgt með við sölu eignar
- Eignin er í einkasölu