Bárugata 1 Dalvík - Stórt og snyrtilegt tveggja hæða 6 herbergja einbýlishús ásamt innbyggðum bílskúr - stærð 231,5 m²
Eigandi skoðar skipti á minni eignMögulegt er að útbúa leiguíbúð á neðri hæð með sérinngangi. Efri hæð, 114,8 m² og skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, eldhús, tvö svefnherbergi, borðstofu og stofuForstofa er flísalögð og með hengi.
Eldhús, ágæt innrétting, hvít/beyki og korkur á gófli. Tæki hafa verið endurnýjuð.
Borðstofa og stofa eru rúmgóðar, með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Gengið út á steyptar svalir úr borðstofu og þaðan niður á timbur verönd.
Hol er parketlagt.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja. Viðarinnrétting og sturtuklefi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum.
Neðri hæð, 84,4 m² og skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, snyrtingu, geymslu og rúmgott þvottahús. Forstofa er flísalögð og með fatahengi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi.
Snyrting er flísalögð
Geymsla er undir stiga, þar er lakkað gólf.
Þvottahús er rúmgott og með lökkuðu gólfi. Bakdyrainngangur er um þvottahús.
Bílskúr er skráður 32,3 m² að stærð, þar er lakkað gólf. Stórt bílaplan.
Annað:- Hluti af gluggum og gler hefur verið endurnýjað.
- Frárennsli hefur verið endurnýjað að mestu.
- Gróin lóð með sólpalli til suðurs