Oddeyrargata 16 - 3ja herbergja efri hæð með sér inngangi í tvíbýlishúsi miðsvæðis á Akureyri - stærð 107,6 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, ris, geymslu og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp
Eldhús er með upprunalegri innréttingu, dúk á gólfi og þiljum á veggjum. Útgengt er úr eldhúsi á rúmgóðar svalir sem snúa í norður.
Stofa er björt með gluggum í suður og austur. Þar er parket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og bæði með dúk á gólfi. Ágætir fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með vínylparket á gólfi, baðkari, vask og wc. Veggir eru flísalagðir að hluta.
Hol er parketlagt, þaðan er gengið upp í ris.
Ris er yfir allri íbúðinni.
Þvottahús er sameiginlegt með neðri hæð, þar er lakkað gólf, innaf þvottahúsi er lítil geymsla.
Sérgeymsla er í kjallara.
Annað- Eignin er að miklu leyti í upprunalegu ástandi s.s. raflagnir, gluggar og eldhúsinnrétting.
- Timbur gólf er á milli hæða.
- Húsið er með háu Valma þaki og því myndast rúmgott ris yfir allri hæðinni, þar væri hægt að gera skemmtilegt rými.
- Sérbílastæði fylgir eigninni.
- Sameiginlegur geymsluskúr er á lóðinni.
- Lóð hefur verið skipt í tvo afnotahluta.