Hafnarstræti 23 - Snyrtileg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í litlu fjölbýlishúsi í Innbænum á Akureyri - stærð 54,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Þvottahús er í sameign.
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu og gráar flísar á gólfi.
Stofa er með gráum flísum á gólfi og gluggum til tveggja átta, annar glugginn var endurnýjaður árið 2021
Svefnherbergi er með ljósu plastparketi á gólfi, innaf svefnherberginu er lítil geymsla/fataherbergi með hvítum skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, handlaug, wc og baðkari með sturtutækjum. Gengið er í gegnum baðherbergið þegar farið er inn í þvottahúsið.
Þvottahús er í sameign. Þar er steypt gólf og hurð út á baklóð.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Eignin er í einkasölu.