Brimnesvegur 22a - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja parhúsaíbúð á Ólafsfirði - 78,6 m²
Húsið var byggt árið 1946 en íbúðin var endurnýjuð á árunum 2007-2008.Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð: Forstofa, hol, eldhús, stofa, baðherbergi og hjónaherbergi.
Efri hæð: Hol, tvö svefnherbergi og tvær geymslur.
Forstofa er með dúk á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús, ljós plastlögð innrétting og dúkur á gólfi.
Stofa er með dúk á gólfi og gluggum með útsýni til vesturs.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu wc, sturtuklefa, handklæðaofni, tengi fyrir þvottavél og opnanlegum glugga.
Snyrting er á efri hæðinni, með dúk á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergið er á neðri hæðinni, með dúk á gólfi og stórum fataskáp og á efri hæðinni eru tvö barnaherbergi, annað með teppi á gólfi og hitt með dúk. Fataskápar eru í báðum herbergjunum.
Tvær geymslur eru á efri hæðinni. Ekki er full lofthæð í þeim og eftir er að klæða upp í loftin.
Annað:- Geymsluskúr er á lóðinni og fylgir með við sölu.
- Gólfhiti er á allri neðri hæðinni og ofnar á efri hæðinni.
- Stéttar eru með hitalögnum.
- Frárennsli endurnýjuð
- Eignin er í einkasölu