Ásholt 3 - Vandað og vel viðhaldið 2ja hæða einbýlishús staðsett á Hauganesi. Húsið er samtals 275,2 m² að stærð en þar af er bílskúr 44,8 m².
Jarðhæð hússins er 143,9 m2 og ris 86,5 m2. Jarðhæð hússins skiptist í forstofu, forstofuherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, búr og bílskúr. Á milli hæða er timburgólf, stigi á milli hæða er úr timbri. Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi, hol og vandað baðherbergi. Lóð er gróin og vel hirt. Sólpallur er vestan við húsið og er gengið út á hann úr sólstofu.
Neðri hæð:Forstofa er flísalögð. Vandaður spónlagður fataskápur.
Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum og settur hiti í gólf. Innrétting er vönduð og spónlögð. Flísar á gólfi. Vönduð eldhústæki.
Stofa er afar rúmgóð og eru loft tekin upp að hluta. Parket á gólfi. Gluggar í tvær áttir.
Sólstofa er flísalögð. Gengið inn í hana úr stofu.
Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt í hólf og gólf. Svört innrétting. Sturta er á baði.
Forstofuherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með dúk á gólfi.
Svefnherbergi með dúk á gólfi.
Þvottahús er flísalagt. Þar er bakdyrainngangur. Hvít innrétting.
Búr er með dúk á gólfi. Hillur á veggjum.
Efri hæð:Mjög rúmgott
svefnherbergi, parketlagt. Gengið út á suður svalir. Fataskápur er í herbergi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, hiti í gólfi.
Baðherbergi er vandað og nýlega endurnýjað. Flísar á gólfi og hluta veggja. Spónlögð innrétting. Baðkar. Baðherbergið er innaf hjónaherbergi.
Bílskúr er sem áður segir 44,8 m² að stærð. Steypt ómálað gólf. Yfir bílskúr er gott ris sem nýtist sem tómstundaherbergi. Teppi á gólfi.
Annað:- Húsgögn geta fylgt með
- Leiguland fyrir hesta getur fylgt með í kaupunum.
- Mjög vandað hús með miklu útsýni.
- Fjórir inngangar eru í húsið.
- Hiti er í forstofu og eldhúsgólfi á neðri hæð.
- Hiti er í hjóna- og baðherbergi á efri hæð.
- Frárennslislagnir eru í plasti.
- Vatnslangir í pex rörum.