Aðalstræti 64 - 4-5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum í Innbænum á Akureyri. Eignin er skráð 153,0 m² að stærð og með byggingarár 2007.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,Neðri hæð, 97,1 m²: Forstofa, eldhús, stofa, gangur, svefnherbergi með fataherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Efri hæð, 55,9 m²: Hol, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Hiti er í gólfum á neðri hæð og ofnar á efri hæð.
Forstofa er með flísum á gólfi, hengi og skóskáp.
Eldhús er með ljósri innréttingu og ljósu plast parketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með ljósu plast parketi á gólfi. Hurð er út stofu til vesturs á timbur verönd.
Baðherbergi á neðri hæð er með flísum á gólfi, dökkri innréttingu, upphengdu wc og baðkari.
Baðherbergi á efri hæð er með dúk á gólfi, ljósri innréttingu, wc og sturtuklefa.
Svefnherbergin eru þrjú, eitt á neðri hæð með fataherbergi inn af. Þar er ljóst plast parket á gólfi. Eftir er að sparsla einn vegg í herberginu. Svefnherbergin á efri hæð eru bæði mjög rúmgóð og með ljósu plast parketi á gólfi.
Hol á efri hæð er mjög rúmgott. Þar er gluggar til tveggja átta og ljóst plast parket á gólfi.
Þvottahús er inn af baðherbergi á neðri hæð. Þar eru flísar á gólfi, lítil innrétting, hillur og hurð út á verönd.
Lóðin er 97,91 % eignarlóð og 2,09 % leigulóð.
Ábending frá seljanda:Seljandi mælir sérstaklega með því að eignin sé skoðuð með fagmönnum og að lagnir séu myndaðar. Ekki er vitað um ástand heimilistækja.