** Eignin er seld með fyrirvara **
Mímisvegur 16 Dalvík - Vel skipulagt 4-5 herbergja einbýlishús með bílskúr og sér 4ra herbergja íbúð á neðri hæð - Heildarstærð 275,3 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Efri hæð: Forstofa, gangur, eldhús, sjónvarpshol, stofa og borðstofa, gangur, baðherbergi, tvö barnaherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi og þvottahús/geymsla.
Neðri hæð: Forstofa, hol stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla.
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum fataskáp.
Eldhús, upprunaleg dökk viðar innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Korkur á gólfi og borðkrókur með glugga.
Sjónvarphol er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi og teppi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Gert er ráð fyrir arin í stofu.
Svefnherbergin eru þrjú á efri hæðinni, tvö barnaherbergi með plast parketi á gólfi og hvítum fataskápum og hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Góðir fataskápar eru í hjónaherberginu.
Baðherbergi hefur verið endurnýja. Flísar á gólfi og veggjum að stærstum hluta, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, sturtuklefi og opnanlegur gluggi.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsinu og þar er lakkað gólf, ljós plastlögð innrétting, hillur, opnanlegur gluggi og hurð út á baklóð.
Köld geymsla er undir stigapalli.
Íbúð á neðri hæð er með sér inngangi.
Forstofa og hol eru með ljósu plast parketi á gólfi.
Eldhús, dúkur á gólfi og ljós innrétting.
Baðherbergi er inn af eldhúsinu, þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting, sturta og tengi fyrir þvottavél.
Stofa er með ljósu plast parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu plast parketi á gólfi.
Geymsla er með dúk á gólfi og hillum.
Bílskúr er skráður 28,8 m² að stærð og með lökkuðu gólfi og vinnuborði. Innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Innangengt er úr bílskúr inn í íbúð á neðri hæðinni. Möl er í bílaplani.
Annað- Búið er að endurnýja gler á efri hæð og í flestum gluggum á neðri hæðinni.
- Eignin er að miklu leiti í upprunalegu ástandi.
- Ekki er full lofthæð á neðri hæðinni.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.