Ásabyggð 8, 600 Akureyri
172.400.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
7 herb.
372 m2
172.400.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1983
Brunabótamat
158.850.000
Fasteignamat
133.400.000

Ásabyggð 8 - Glæsilegt 7 herbergja einbýlishús með bílskúr á vinsælum og grónum stað á Brekkunni. 
Eignin var byggð árið 1983 og er skráð 372,5 m² að stærð.


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Aðalhæð, 216,0 m² :
Forstofa, eldhús, búr, hol, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/bakinngangur, tæknirými og bílskúr.
Ris: 80,4 m² : Sjónvarsphol og hjónaherbergi með snyrtingu.
Kjallari 76,1 m² : Hol, geymsla, baðherbergi og eitt svefnherbergi.

Forstofan er með ljósum flísum á gólfi og góðu fatahengi. Úr forstofu er gengið inn á hol með flísum og parketi á gólfi. Á holinu er steyptur og parket lagður stigi upp á efri hæðina og niður í kjallara.
Eldhús, hvít filmuð innrétting með flísum á milli skápa. Gott bekkjar- og skápapláss og rúmgóður borðkrókur. Lítið búr er inn af eldhúsinu með flísum á gólfi og hillum. 
Stofan er mjög rúmgóð, með parketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og innfelldri lýsingu í lofti. Fyrir framan stofuna er veglegur arin og hurð út á steypta verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti.
Sjónvarpsholið er í risinu, rúmgott rými með parketi á gólfi og hurð út á steyptar suðvestur svalir. Skemmtilegur útsýnisgluggi til norðurs. 
Baðherbergin eru tvö. Á aðalhæðinni eru hvítar flísar á gólfi og hluta veggja, blá sprautulökkuð innrétting, wc, hlaðið og flísalagt baðkar og opnanlegur gluggi. Baðherbergið í kjallaranum hefur nýlega verið endurnýjað, þar eru gráar flísar á gólfi og hlutaveggja, dökk innrétting með steinbekkplötu með íföstum vask, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Öll tæki á baðherberginu eru svört og í lofti er innfelld lýsing. 
Barnaherbergin eru fjögur, þrjú á aðalhæðinni, öll með parketi á gólf og tvö með fataskápum og eitt í kjallaranum mjög rúmgott með flotuðu gólfi.
Hjónasvítan er í austur endanum í risinu. Ljóst harð parket er á gólfi og stór tvílitur fataskápur. Snyrting er inn af hjónaherberginu. Hurð er út úr hjónaherberginu út á steyptar norðaustur svalir.
Á holinu í kjallaranum er infrarauð sauna sem fylgir með við sölu eignar.
Geymsla er í kjallaranum með flotuðu gólfi.
Þvottahúsið nýtist jafnframt sem annar inngangur fyrir eignina. Þar eru ljósar flísar á gólfi og grá sprautulökkuð innrétting. Úr þvottahúsinu er gengið inn í tæknirými og þaðan inn í bílskúr. Í tæknirýminu er lofthitakerfi hússins staðsett. 
Bílskúrinn og tæknirýmið er skráð 45,8 m² að stærð. Þar er lakkað gólf vinnuborð og rafdrifin innkeyrsluhurð. Fyrir framan bílskúrinn er steypt bílaplan.

Annað
- Lofthitakerfi er á aðalhæðinni í húsinu og ofnar í risi og kjallara
- Loft eru tekin upp í helstu rýmum eignarinnar.
- Búið er að breyta skipulagi í kjallaranum frá teikningum.
- Hluti af gleri í húsinu er þrefalt
- Hluti af gleri var endurnýjað árið 2016
- Árið 2016 var lóð fyrir framan húsið endurgerð, steypt verönd og skjólveggir og settur heitur pottur. 
- Þak var endurnýjað kringum 2000.
- Eignin er í einkasölu




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.