Hringtún 46 , 620 Dalvík
53.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
90 m2
53.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
19.650.000

Hringtún 46 - Glæsileg 3ja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð í byggingu á Dalvík - stærð 90,0 m²

Eignin selst fullbúin og verður til afhendingar fyrri hluta árs 2024
** Myndir eru úr sýningaríbúð **

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Eigninni fylgir 7,5 m² geymsla staðsett í sameignlegu rými milli íbúðar 44 og 46

* Allar innréttingar og fataskápar eru frá Ikea. Í eldhúsi er dökk innrétting með viðar áferð en fataskápar og innrétting á baðherbergi er hvítt að lit.
* Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu.
* Vínyl parket er á öllum gólfum íbúðar fyrir utan baðherbergi, þar verða gráar 60*60 flísar
* Hljóðdempandi dúkur og innfelld led lýsing er í öllum rýmum íbúðar. 
* Loft eru tekin upp í öllum rýmum íbúðar.
* Hiti er í öllum gólfum og handklæðaofn á baðherbergi.
* Ídráttarrör eru fyrir mögulegan heitan pott á baklóð.
* Snjóbræðsla, lokað kerfi er í stétt fyrir framan, um 30 m²

Íbúðirnar í húsinu falla allar undir skilmála Hlutdeildarlána.

Útborgun  5%                 kr.   2.675.000.-
Bankalán 75%                kr. 40.125.000.-
Hlutdeildarlán 20%        kr. 10.700.000.-
Kaupverð alls                 kr. 53.500.000.-

Skilalýsing eignar,

Húsið verður byggt samkvæmt teikningum gerðum af Arkibygg og hönnuð af Ástríði Birnu Árnadóttur arkitekt og Stefaníu Helgu Pálmadóttur byggingafræðingi.
Byggingaraðili er EGO hús ehf á Akureyri.

Íbúðirnar afhendast á sjötta byggingarstigi. Byggingarstigi 7 (fullfrágengin lóð) í júlí 2024.
Húsið er fjögurra íbúða raðhús á einni hæð ásamt sameign. Í sameign eru sérgeymsla fyrir hverja íbúð ásamt vagna- og hjólageymslu.
Húsið er staðsteypt í plasteinangrunarkubba. Undirstöður eru einnig steyptar í plasteinangrunarkubba. Undir gólfplötu er einangrað með 4” plasteinangrun. Gólfplata er steypt, pússuð með flotbretti og rétt af með flotmúr.
Þök eru einhalla, byggð upp með límtrésbitum og ileiningum (200mm steinull) og tvö lög af asfalt dúk.
Fráveitu- og drenlagnir lagðar samkvæmt teikningu og tengdar við fráveitukerfi.
Innveggir eru steyptir og léttir veggir. Allir veggir verða sandsparslaðir þar sem við á og fullmálaðir í ljósum lit samkvæmt vali hönnuðar.
Gólfefni: Gólf baðherbergis verða flísalögð. Önnur gólf íbúðar verð með vönduðu vínyl parketi.
Innihurðir verða yfirfelldar með stálhandföngum.
Innréttingar í eldhúsi verða dökkar, með viðar áferð og svörtum höldum. Spanhelluborð, vifta og bakaraofn með blæstri. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir fylgja með við sölu eignar.
Á milli bekkja og efri skápa í eldhúsi verða gráar fiber plötur með t.d. steypuáferð. Bekkjarplötur verða gráar harðplast plötur.
Fataskápar: Framhliðar fataskápar verða hvítar. Allar skúffur og skápahurðir verða með ljúflokum af viðurkenndri gerð.
Baðherbergi verður með sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Stórt (aflangt) niðurfall í gólfi og glerhlið niður í gólf. Í kringum sturtu koma gráar flísar. Innrétting og skápar verða hvít hálfmatt.
Hreinlætis-og blöndunartæki í húsinu verða af viðurkenndri gerð. Sameiginlegur varmaskiptir fyrir neysluvatn verður uppsettur og tengdur.
Öll ljós íbúðar verða fullfrágengin ásamt lýsingu undir efri skápum í eldhússinnréttingu. Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum. Loft verða með hljóðdempunardúk.
Útiljós verða uppsett og frágengin.
Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig og stýring fyrir hvert rými.
 
Neysluvatnslagnir (rör í rör) verða lagðar í gólf að tengistað með tilheyrandi búnaði.
Rafmagn: Röralagnir ásamt tilheyrandi dósum fyrir rafmagn og síma/internet lagt í veggi og loft samkvæmt teikningu. Raf og síma-/netlagnir verða fullfrágengnar. Rafmagnstafla verður fullfrágengin. Rör verður lagt frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslu á bifreiðum.
 
Að utan verða útveggir múraðir og málaðir með ljósum lit skv. vali hönnuða.
Hurðir og gluggar eru úr timbri og klætt lituðu áli að utan. Tvöfalt gler.
Lóðin verður jöfnuð ogsáð í grasifræi. Stéttar verða steyptar, en bílaplön malbikuð. Snjóbræðslukerfi verður í stéttum. Snjóbræðslukerfi verður lokað kerfi, áfyllt frostlegi og tilbúið með varmaskipti. Mokað verður út fyrir sólpalli og fyllt með frostfríu efni.
Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
 
Ath. minniháttar sprungur geta myndast á máluðum flötum nýbygginga á fyrstu mánuðum eftir afhendingu og telst slík sprungumyndun ekki til ágalla.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.